Sumar í Odense

Ég er búin að njóta þess í botn að búa í Danmörku síðustu daga. Þetta var 4 dagurinn í röð sem ég ligg úti í sólbaði og les skólabækurnar.

 

 

 

 

 

 

 

 

Veðrið er búið að vera æði og lítur spáin vel út fyrir næstu daga, vei vei!!

byvejr

 

 

 

 

 

 

Þetta var útsýnið sem ég hafði í dag í garðinum:

  CIMG7513

 

 

 

 

 

 

 

 

En líffræðingurinn í mér skaut alltí einu upp kollinum í dag þegar ég var að rölta heim úr garðinum. Því þá sá ég þetta litla krútt.... 

Ótrúlegt en satt þá hef ég aldrei áævinni séð leðurblöku áður þó ég hafi séð heilan helling af mismunandi dýrum.

Þetta litla krútt var ennþá lifandi en lá þarna eins og skata (haha!) en kvæsti svo bara á mig þegar ég reyndi að pota í það...

Mig langaði mikið að taka hana með mér heim en hún virtist ekkert vera sátt við að ég væri að trufla miðdegislundinn hennar, þannig ég sleppti því!

Ég verð að viðurkenna að ég var soldið hrædd við þetta litla kríli... þegar hún hreyfði sig hrökk ég við og þess vegna hreyfist myndin svona mikið, hehe!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá þetta ver geggjað fott en ég skil þig samt alveg að hafa verið soldið smeik

Magga (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband